Hafa samband
headerheaderheaderheader

Námskeið

                                                              6 vikna námskeið, 6 æfingar í viku og 6 kg í burtu. Þeir sem ná 6 kg í burtu á 6 vikum fá

6x6x6 áskorun fyrir karla

 

                                                           

6 vikna námskeið, 6 æfingar í viku og 6 kg í burtu. Þeir sem ná 6 kg í burtu á 6 vikum fá 6 vikna gjafakort frá okkur. 
Höfum valið skemmtilega blöndu sem virkar vel.
Body Pump á mánudögum kl 6:10, Hot Yoga á þriðjudögum kl 6:10, útitími á miðvikudögum kl 17:30, spinning/þrek á fimmtudögum kl 6:10, tækjasalur á föstudögum þegar hentar og val um tíma eða tæki um helgar.  Útbúum æfingaáætlun í tækjasalinn við hæfi og kennarar eru til staðar í salnum á ákveðnum tíma til að leiðbeina. 

Happdrættisvinningar í lok námskeiðs, nuddtímar, bjargbolir og bíómiðar.

Hentar körlum og strákum á öllum aldri sem vilja komast í gott form, minnka ummál miðjunnar og borða hollari mat.  Ekki er verra ef kílóin fjúka.

Kennarar eru:  Bryndís Arnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, IAK einkaþjálfari, jógakennari og heilsumeistari
og Sonja Sif Jóhannsdóttir, master í íþróttafræðum og hlaupari.

Næsta námskeið verður haustið  2012.  6 vikna námskeið. Fastir tímar eru á þriðjudögum, fimmtudögum kl 6:10 og Body Pump tíminn á mánudögum er líka kl 6:10.  Miðvikudagstíminn er kl 17:30 og svo er hægt að mæta í tækjasalinn þegar hentar.

Fyrsta námskeiðið 2012 heppnaðist vel, kílóin fuku og strákarnir styrktust, bættu þolið og liðleikinn jókst í heitu jógatímunum.  Stígðu út úr þessu vanalega og prufaðu þessa blöndu, fáðu fræðslu og aðhald hjá frábærum þjálfurum og breyttu lífsstílnum til frambúðar.  2000kr afsláttur af námskeiði nr 2, 3....

Verð 23.000 kr.
Innifalið er frjáls aðgangur að tækjasal og opnum tímum, potti og gufuböðum.
Vikuleg fræðsla og hvatning í netpósti.
Vigtun og mælingar, frí barnagæsla.
Þeir sem eiga kort í gildi á meðan námskeiði stendur, fá að sjálfsögðu 6 vikna framlengingu á korti eftir námskeið.

Svæði

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf