
6 vikna námskeið, 6 æfingar í viku og 6 kg í burtu. Þau sem ná 6 kg í burtu á 6
vikum fá 6 vikna gjafakort frá okkur.
Höfum valið skemmtilega blöndu sem virkar vel.
Val er um tvo hópa, morgunhóp kl 6:10 eða seinni partinn kl 16:30. Frjálst er að flakka á milli hópa og nú höfum við konur og karla saman og því frábært fyrir pör að koma saman á námskeið.
Tækjasalur á miðvikudögum og laugardegi eða sunnudegi, mæting á opnunartíma þegar hverjum og einum hentar best. Óli hefur
útbúið einstaklega flott prógrömm fyrir námskeiðið og hann og stelpurnar kenna á þau og fylgja þeim eftir. Breytum eftir 3 vikur
og svo fá þátttakendur framhaldsprógram þegar námskeiði lýkur. Annars er ekki vitlaust að taka tvö námskeið í
röð, 2000kr afsláttur af seinna námskeiðinu.
Hot Yoga á þriðjudögum kl. 6:10 og 16:30.
Útitími hjá Sonju á miðvikudögum kl 17:30.
Hálftíma spinning og boltapuð í heitum sal í 30 mín. á fimmtudögum kl. 6:10 og 16:30. Breytum svo boltapuðinu í CXWORX seinni 3
vikurnar.
Val um CrossFit eða spinning kl 6:10 á föstudögum.Body Vive kl. 16:30 eða Sh´bam kl 17:30.
Allir fá matseðla til að fara eftir, uppskriftir, myndir og fræðslu í netpósti. Matseðlarnir og æfingaprógrammið miða
að því að koma þátttakendum í alhliða gott form og að léttast um 1 kg á viku. Okkar ráðleggingar eru alltaf
jarðbundnar og ekki byggðar á öfgum eins og dufti og pillum.
Happdrættisvinningar í lok námskeiðs, nuddtímar, Bjargpeysur, förðun og út að borða.
Næsta námskeið hefst haustið 2012.
Verð 23.000 kr.
Innifalið er frjáls aðgangur að tækjasal og opnum tímum, potti og gufuböðum.
Vikuleg fræðsla og hvatning í netpósti.
Vigtun og mælingar, frí barnagæsla.
Þau sem eiga kort í gildi á meðan námskeiði stendur, fá að sjálfsögðu 6 vikna framlengingu á korti eftir
námskeið.
Þjálfarar: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Bryndís Arnarsdóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir og Ólafur
óskarsson.



