Opnunartími
28: desember, miðvikudagur: Venjulegur dagur og allir tímar inni. Zumba partý kl 16:30 og allir
mæta í partýdressinu.
29. desember, fimmtudagur: Opið eins og venjulega. Allir tímar seinni partinn
falla niður (líka Body Pump í hádeginu) og í staðinn kemur
ÁRAMÓTAGLEÐI BJARGS
frá kl 17-19. Allir kennararnir á staðnum og kennt í öllum sölum. Fólk velur hvort það vill vera allan tímann eða
ekki. Hitum upp saman en skiptum svo hópnum upp í 4 hópa og sendum á milli sala og kennara, ca 20 mínútur á hverjum stað.
Hvetjum alla til að mæta í gleðilegum klæðnaði.
30. desember, föstudagur: Opið eins og venjulega og Spinning 6:10 og
hádegisþrek inni, aðrir tímar falla niður.
31. desember, laugardagur: Opið frá 10-13. Hvetjum fólk til að vera með í Gamlárshlaupi UFA kl 11. 10 km og 5 km hlaup eða ganga. Pottarnir verða opnir eins og þarf fyrir hlauparana. Þeir sem ætla
að ganga 10 km fara af stað kl 10:00.
1. janúar, sunnudagur: Lokað
2. janúar, mánudagur: Allir morguntímar falla niður (engin barnagæsla fyrir hádegi) en hádegistíminn er inni og allt eftir
það.



