BJARG.IS
FRÉTTIR
05/02/2010
Æðislegur Body Balance
Við viljum hvetja alla til að prufa Body Balance.  Frábærar teygjur sem gera ykkur gott, krefjandi jógaæfingar, Pilates kvið og bakæfingar og slökun í lokin.  Við kennum við kertaljós og tónlistin er frábær.  Ef þið viljið huga að djúpu kvið og bakvöðvunum og almennum liðleika þá er Body Balance svarið.  Þið mótið langa og fallega vöðva og bætið líkamsstöðuna.  Tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 18:30 og kl 10:30 á laugardögum.

Til baka

 
Leitarorð:
 
matseðlar

matardagbók

innifalið í korti

Kreppukort

Fjallgöngur 2010

Cross Fit

Toppur

Les Mills